Thursday, April 12, 2007

en to BOOM....

Verðum að fara að verða duglegri við að setja eitthvað hingað inn.

Vildi bara láta vita af frekar sérstakri lífsreynslu sem ég varð fyrir í gær. Þannig er mál með vexti að vinnan mín er staðsett í litlum strandbæ sem heitir Greve. Rosalega rólegur og sætur bær með ströndina í 5 mín göngufæri. Allt voðalega huggulegt.

Hliðin á vinnunni er svona meðalstór verslunarmiðstöð sem heitir Greve center. Ég fer oftast þangað í hádeginu til þess að borða. Það var einmitt það sem ég ætlaði að gera í gær en þegar ég kem að inngangnum þá var búið að setja lögreglulímband utanum alla verslunarmiðstöðina og lögreglumenn að halda öllu fólki frá.

Ég vissi ekkert hvað var í gangi en nokkuð ljóst að ég kæmist ekki inn þannig að ég byrja að rölta til baka í vinnuna. Þegar ég er búinn að taka svona 20 skref heyrist þá ekki í þessari svakalegu sprengingu frá verslunarmiðstöðinni. Ég skildi ekkert í því af hverju allir voru svona rólegir yfir því að það skildi springa sprengja þarna nokkra metra frá þeim því mér var nokkuð brugðið. Eitthvað sem maður sér ekki á hverjum degi allaveganna.

Ég fékk svo að vita eftir á að um páskana höfðu bankaræningjar víst reynt að sprengja upp banka sem er þarna og skilið eitthvað af sprengiefni eftir. Lögreglan var þá að sprengja leifarnar því hún þorði ekki að flytja það milli staða.

Já held að ég líti ekki sömu augum á litla sæta strandbæinn eftir þetta.

En annars er allt gott að frétta af okkur... Ebba að klára fyrsta skrefið í dönskuskólanum og er svo á leiðinni í atvinnuviðtal í næstu viku þannig að það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því...

En þangað til næst
bæbræbræbæræbræbræbrbrææbræbr

5 comments:

Karen Olga Ársælsdóttir said...

LOKSINS! Bíddu við strandbæ? Búið þið ekki í Köben?? humm... þarf greinilega að fara að rifja landafræðina eitthvað upp :)
Allavegana gott að heyra frá ykkur og ekki væri verra ef Ebba myndi skrifa kannski nokkur orð hérna líka (þú stendur þig samt eins og hetja Hilmar).
p.s. Einar er búinn að fá bréf frá DTU og hann er komin inn (en ekki hvað?) og skólinn byrjar 28.ágúst þannig að hann er væntanlegur í Danaveldi uppúr 20.ágúst reiknum við með.

Anonymous said...

Hvernig er þetta með dönskuna þína, kanntu ekkert annað en einn og tveir? Síðan heitir "en to ehhhh þrír???" og þessi grein "en to BOOM"
kveðja
en to ehhhh Raven

Hilmar said...

En to ehhh trej??? Nei ég þarf greinilega að læra þetta betur.. Annars er það rétt Karen að Ebba þarf að fara að setja eitthvað hingað inn :) Eins og þú kannski veist þá er hún ekkert rosalega mikið fyrir svona bloggsíður... En ég skal reyna að ýta henni út í bloggheiminn og þá verður hún óstöðvandi!!! Annars er það að frétta af henni að hún náði fyrsta stigi í skólanum og er byrjuð á því öðru!!

Anonymous said...

hej og takk fyrir síðast, det var rigtig dejligt....en já þið eruð ekki öflugustu bloggaranir sem ég þekki....koma svo en to og......garderobebokser!!!!

Anonymous said...

Great work.