Wednesday, March 28, 2007

Ahhhh ef þetta er ekki lífið.....

Jæja held að það sé kominn tími til þess að við setjum eitthvað hingað inn.

Allt rosalega fínt að frétta af okkur, ég á fullu í vinnunni og Ebba í skólanum sem skýrir að nokkru leyti hvað það er búið að gerast mikið á þessari síðu. Annars gengur okkur bara báðum vel að aðlagast og engin heimþrá farin að gera vart við sig allaveganna ennþá :) Enda skemmir ekki fyrir að núna undanfarna daga hefur veðrið verið að taka við sér og 10-15 stiga hiti upp á hvern einasta dag. Gaman að sjá hvað borgin lifnar við með veðrinu. Fengum lánuð hjól núna seinustu helgi og höfum farið í hjólatúr í kvöldsólinni á hverjum einasta degi síðan.

Við erum búin að gera margt og mikið þennan eina og hálfa mánuð sem við erum búin að vera hérna (djö... líður tíminn hratt). Við tökum saman það helsta og setjum hingað inn á næstu dögum en okkur langaði bara til þess að láta vita að við værum ennþá á lífi og í fullu fjöri!!

bæbræbræbræbær
HogE

4 comments:

Anonymous said...

Það var mikið að eitthvað kom, maður var farinn að halda að þið hefðuð ekki lifað af vesenið í Köben í síðasta mánuði.

Hilmar said...

Þetta hefur stundum verið frekar óþægilegt þegar bensínsprengjurnar eru að springa tvo metra frá manni en við sluppum sem betur fer....

Tryggvi said...

Já, var nú ekki sérstaklega erfitt þegar húsnæði ykkar var rifið niður?

Karen Olga Ársælsdóttir said...

hæhæ! Gaman að heyra loksins eitthvað frá ykkur! Verið nú dugleg að setja inn fréttir og myndir eða bara eitthvað, maður er alltaf að fylgjast með ;-)